Breytingar á skilmálum ACRO verðbréfa hf.

Vakin er athygli á því að á heimasíðu ACRO verðbréfa hf. hafa verið birtir uppfærðir Viðskiptaskilmálar fjárfestingarþjónustu, sem gilda almennt um fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi sem félagið veitir ásamt ýmsum öðrum skilmálum og reglum. Til fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi sem félagið veitir í þeim skilningi telst m.a. móttaka og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavini um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavinar, fjárfestingarráðgjöf, eignarstýring og önnur fjárfestingarþjónusta, fjárfestingarstarfsemi og viðbótarþjónusta sem falla undir starfsleyfi félagsins á hverjum tíma, sbr. 1. og 2. mgr. 5. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga. Uppfærðir skilmálar og reglur taka gildi frá og með deginum í dag. Auk skilmála og reglna gilda, eftir atvikum, ákvæði samninga, sértækra skilmála og reglna um einstakar vörur eða fjárfestingarþjónustu.

Núverandi viðskiptavinir ACRO verðbréfa hf. teljast hafa samþykkt hina nýju skilmála og reglur haldi þeir áfram viðskiptum við félagið eftir gildistöku þeirra. Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum um framangreinda skilmála með því að hafa samband á netfangið acro@acro.is

Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér efni skilmálanna, sem hægt er að nálgast hér.