Acro verðbréf voru annar af söluráðgjöfum Alvotech við sölu félagsins á hlutabréfum fyrir 19,5 milljarða króna í lokuðu útboði sem lauk sunnudaginn 22. janúar sl.
Acro hefur gefið út nýtt verðbréfaapp með aðgang að rauntímagögnum í Kauphöll Íslands. ACRO appið er aðgengilegt í AppStore og PlayStore.
Tveir nýir starfsmenn hafa gengið til liðs við ACRO verðbréf. Bjarki Hvannberg hefur verið ráðinn í eignastýringu og Þórdís Erla Magnúsdóttir í markaðsviðskipti.
Acro verðbréf voru einn af söluráðgjöfum Alvotech við sölu félagsins á breytanlegum skuldabréfum að andvirði um 10 milljarða króna sem lauk þann 16. desember.Við þökkum Alvotech og öðrum söluráðgjöfum fyrir samstarfið og óskum félaginu til hamingju með áfangann.
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL101227 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.
Alma íbúðafélag hf. tilkynnti í dag að félagði hefði gefið út skuldabréf, samtals að nafnverði kr. 3.100.000.000, í flokkunum AL150424 og AL101227. Skuldabréfin eru bæði veðtryggð samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins og verða skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.