Umsjón með stækkun skuldabréfaflokks Reita fasteignafélags hf.

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150534 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn REITIR150534 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,04% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 8.582 m.kr.

ACRO verðbréf hf. höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Við óskum Reitum fasteignafélagi hf. til hamingju með vel heppnaða stækkun skuldabréfaflokksins.

Hér má sjá tilkynningu félagsins sem birt var í kauphöll.