Umsjón með stækkun skuldabréfaflokks Ölmu íbúðarfélags hf.

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL101227 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL101227 er verðtryggður á föstum vöxtum, til 6 ára, en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 4.800 m.kr.

ACRO verðbréf hf. höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Við óskum Ölmu íbúðarfélagi hf. til hamingju með vel heppnaða stækkun skuldabréfaflokksins.

Hér má sjá tilkynningu félagsins sem birt var í kauphöll.